|
Samkvæmt JAR-FCL 1 eru gerðar nokkrar kröfur til þeirra sem óska eftir að sitja námskeið til flugkennaraáritunar. Áður en umsækjandi fær aðgang að námskeiði til flugkennaraáritunar skal hann:
- hafa lokið minnst 200 fartímum, þar af minnst 100 tímum sem flugstjóri ef umsækjandi er handhafi atvinnuflugmannsskírteinis 1. flokks /flugvél eða atvinnuflugmannsskírteinis/flugvél eða 150 fartímum sem flugstjóri ef hann er handhafi einkaflugmannsskírteinis/flugvél;
- hafa uppfyllt þekkingarkröfur til atvinnuflugmannsskírteinis/flugvél eins og kveðið er á um í b-lið AMC FCL 1.470;
- hafa lokið minnst 30 fartímum í einshreyfils flugvélum með bulluhreyfli en þar af skal minnst fimm tímum hafa verið lokið á sex næstliðnum mánuðum fyrir inntökuflugprófið sem skilgreint er í f- lið hér á eftir;
- hafa fengið minnst 10 tíma blindflugskennslu en af þeim mega ekki fleiri en fimm tímar vera blindflugskennsla í flugaðferðaþjálfa eða flughermi;
- hafa lokið minnst 20 fartímum í landflugi sem flugstjóri, þar af í flugi sem í heild er ekki skemmra en 540 km (300 sjómílur) og skulu meðan á því stóð hafa verið gerðar stöðvunarlendingar á tveimur mismunandi flugvöllum; og
- hafa staðist sérstakt inntökuflugpróf með flugkennara sem hefur þau réttindi sem tilgreind eru í f-lið JAR-FCL 1.330 og eru byggð á hæfniprófi, sem kveðið er á um í 3. viðbæti við JAR-FCL 1.240, á næstliðnum sex mánuðum áður en námskeiðið hefst. Flugprófið skal staðfesta getu umsækjandans til að sækja námskeiðið.
Flugskóli Helga Jónssonar bendir á reglugerð JAA, JAR-FCL 1, reglugerð um skírteini flugáhafna, og JAR-FCL 3, reglugerð um heilbrigði flugliða, til frekari upplýsinga.
|