Bóklegt einkaflugnám

 

Fögin í bóklegu einkaflugmannsnámi eru níu talsins og lágmarks árangur í hverju fagi er 75%. Bóklega prófið gildir í 24 mánuði frá því það var tekið og þarf að ljúka verklegu prófi á þeim tíma. Kennslustundir á samfelldu námskeiði eru 125.

Fögin eru eftirfarandi

  1. Lög og reglur um loftferðir (Air Law)
  2. Almenn þekking á loftförum (Aircraft General Knowledge)
  3. Afkastageta og áætlanagerð (Flight performance and planning)
  4. Mannlegt geta og takmörk hennar (Human performance and limitations)
  5. Flugveðurfræði (Meteorology)
  6. Siglingafræði (General navigation and radio aids)
  7. Verklagsreglur í flugi (Operational procedures)
  8. Flugfræði (Principles of flight)
  9. Fjarskipti (Communications)

Til þess að útskrifast með bóklegt einkaflugmannspróf þarf nemandi að taka fyrst skólapróf, og svo bóklegt próf hjá Flugmálastjórn Íslands.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólans til að fá upplýsingar um næsta námskeið. Skráning og upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 551-0880.

Flugskóli Helga Jónssonar ehf • Reykjavíkurflugvelli • 101 Reykjavík

Sími 551-0880 • www.flugskolinn.isinfo@flugskolinn.is