Kröfur

 

Kröfur til umsækjanda einkaflugmannsskírteina eru samkvæmt JAR-FCL 1, reglugerð flugmálastjórna í Evrópu (JAA) um skírteini flugáhafna.

Kröfurnar eru eftirfarandi (listinn er ekki tæmandi):

  • Umsækjandi skal vera minnst 17 ára að aldri
  • Umsækjandi skal vera með að minnsta kosti annars flokks heilbrigðisvottorð (gilt)
  • Hafa setið bóklegt námskeið og staðist bókleg próf hjá Flugmálastjórn Íslands
  • Hafa flogið 55 verklega flugtíma og staðist verklegt próf hjá Flugmálastjórn Íslands (kröfur samkvæmt lágmarki eru 45 flugtímar, en FHJ krefst 55 flugtíma af sínum nemendum)

Flugskóli Helga Jónssonar bendir á reglugerð JAA, JAR-FCL 1, reglugerð um skírteini flugáhafna, og JAR-FCL 3, reglugerð um heilbrigði flugliða, til frekari upplýsinga.

Flugskóli Helga Jónssonar ehf • Reykjavíkurflugvelli • 101 Reykjavík

Sími 551-0880 • www.flugskolinn.isinfo@flugskolinn.is