|
Til verklegs einkaflugmannsprófs þarf að taka
55 flugtíma. Við kennslu í flugæfingum, sem kveðið er á um samkvæmt JAR-FCL,
eru notaðar aðferðalýsingar sem kenndar eru í fræðilegum hluta
einkaflugmannsnámskeiðsins. Til viðbótar við kröfur JAR-FCL kennir skólinn
til næturflugsáritunar undirstöðuatriði í blindflugi, 5 tímar í hvorn hluta,
og er það hluti af verklegu einkaflugmannsnámi skólans.
Til þess að útskrifast með einkaflugmannspróf
þarf nemandinn að taka fyrst verklegt skólapróf, en svo er tekið verklegt
einkaflugmannspróf hjá Flugmálastjórn Íslands. Ekki er hægt að taka verklegt
próf fyrr en bóklegu einkaflugmannsprófin eru að baki með fullnægjandi
árangri.
|