Sagan

 

Flugskóli Helga Jónssonar var stofnaður í maí 1964.

Fyrsta flugvél skólans var TF-AIB, sem flýgur enn í dag. Flugskólinn byrjaði á þriðju hæð í gamla flugturninum á Reykjavíkurflugvelli. Fljótlega keypti Helgi Cessnu C-150, TF-FHB, sem var svo gott sem ný, aðeins flogin 340 tíma. Þriðja vél skólans var Cessna Skyhawk, TF-FHD. Árið 1969 keypti flugskólinn aðstöðu Flugskólans Þyts á Reykjavíkurflugvelli, ásamt því að kaupa af Þyti vélina TF-BAA, sem var fyrsta tveggja hreyfla vél skólans. Með kaupunum stórbreyttist aðstaða skólans, bæði fyrir kennslu og þjónustuflug. Sama ár hóf Jytte Jónsson, eiginkona Helga, sitt flugnám og lauk því með atvinnuflugmannsprófi 1974. Um leið og Jytte hóf nám sitt hóf hún störf við skólann. 1978 var stofnuð bókleg deild í flugfræðum við fjölbrautaskóla í Keflavík og fluttist þá bókleg atvinnuflugnámskennsla af Reykjavíkurflugvelli til Keflavíkur. Kennarar í bóklegum fögum skólans fóru þá að kenna í Keflavík.

Fyrsti nemandi skólans var Kolbeinn Sigurðsson, sem nú er flugstjóri hjá Cargolux. Þegar Kolbeinn lauk sínu námi hóf hann störf við skólann og var því fyrsti starfsmaður skólans fyrir utan Helga. Nokkrir vinir Kolbeins fylgdu fljótlega í kjölfarið og starfa þeir flestir sem flugstjórar í dag.

Reksturinn vatt upp á sig og fljótlega fékk skólinn þjónustuflugsleyfi. Flug með ferðamenn, sjúkraflug og önnur leiguflug, urðu brátt stór hluti af rekstri skólans. Í janúar 1984 fékk Helgi Jónsson leyfi til áætlunarflugs til Kulusuk í Grænlandi. Árið 1985 var hafist handa við að skilja leigu- og áætlunarflugið frá rekstri skólans og lauk því 1990 með stofnun flugfélagsins Odin Air. Hvorki skólinn né Odin Air hafa nokkurn tíma fengið styrki frá ríkinu til rekstrar og segir það nokkuð til um styrk skólans.

Skólinn er rekinn samkvæmt reglugerð samtaka flugmálastjórna í Evrópu (JAA), JAR-FCL. Í júlí 1999 tók reglugerðin gildi og hafði flugskólinn þá þegar hafið undirbúning að umsókn skólans um kennsluleyfi samkvæmt nýrri reglugerð. Skólinn fékk leyfi númer IS/FTO/002 frá Flugmálastjórn Íslands.

Flugskólinn hefur nú starfað í bráðum 40 ár og hafa Helgi og Jytte staðið vaktina allan tímann. Má því með sanni segja að Helgi og Jytte hafi séð og heyrt flugsögu Íslands með eigin augum og eyrum. Sagan verður skráð síðar…

Listi yfir flugskóla og flugfélög samtíða Flugskóla Helga Jónssonar

Flugskóli Helga Jónssonar ehf • Reykjavíkurflugvelli • 101 Reykjavík

Sími 551-0880 • www.flugskolinn.isinfo@flugskolinn.is